Nýárskveðja

Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands sendir öllum meðlimum, félögum og velunnurum óskir um farsælt nýtt ár.

2010 hefur með sönnu verið merkilegt ár í sögu kraftlyftinga á Íslandi. Í apríl stofnaði ÍSÍ sérsamband um íþróttina og mikið uppbyggingarstarf hefur átt sér stað. Stjórnin vill þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóginn á árinu; öllum stjórnum kraftlyftingafélaga á landinu, stjórnendum og starfsmönnum ÍSÍ, stuðningsaðilum, fréttamönnum, áhorfendum, dómerum; en fyrst og fremst keppendum og aðstoðarmönnum þeirra.

Með áframhaldandi samstilltu átaki mun 2011 verða ennþá betra kraftlyftingaár!

GLEÐILEGT NÝTT ÁR!

Gamlársmót KFA

Akureyrarmótið í bekkpressu fer fram á síðasta degi ársins venju samkvæmt.
Upplýsingar um stað og stund má finna á heimasíðu KFA
Keppendur eru 12, tvær konur og tíu karlar.

Freydís  -  -67,5kg
Kristjana Ösp Birgisdóttir  -   -75kg

Sigþór Árni Heimisson   -   -67.5 kg
Elvar Örn Sigurðsson   -    -75kg
Bjarki Freyr   -    -82,5kg
Andres Ostrowski    -     -90kg
Erlendur Helgi Jóhannesson    -    -90kg
Ormar Agnarsson    -     -100kg
Friðrik Svavarsson    -    -100kg
Einar Birgisson    -     -100kg
Kristján H. Buch    -     -110kg
Bjarki Garðarsson     -      -125kg

Skráningarviðmið fyrir Íslandsmet

1.janúar tekur IPF upp nýja þyngdarflokka. Um leið hefst skráning nýrra meta og gömlu metin “frystast” og geymast í sögubókum.
Nokkur munur er á hvernig landssamböndin ætla að taka á þessu máli, sum ætla að hefja metaskráningu frá núllinu eins og KRAFT gerði fyrir nokkrum árum, önnur ætla að setja lágmarksviðmið fyrir skráningu. IPF hefur birt lágmarksviðmið fyrir skráningu nýrra heimsmeta hér: http://www.powerlifting-ipf.com/fileadmin/data/rankings/WR_Standards_all.pdf 

Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands hefur ákveðið að setja lágmarksviðmið fyrir skráningu Íslandsmeta byggð á núgildandi metum. Meðalstigafjöldi gildandi meta verður reiknaður í hverjum aldursflokki fyrir sig og þau willks-stig lögð til grundvallar við útreikningu lágmarka í nýju þyngdarflokkunum. Tafla yfir lágmörkin mun birtast hér fyrir áramót.

Íþróttmenn ársins

Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands hefur valið Maríu Guðsteinsdóttur, Ármanni, og Auðun Jónsson, Breiðablik kraftlyftingakonu og -mann ársins 2010.

Varla þarf að kynna Maríu og Auðun fyrir kraftlyftingaunnendur.

Auðunn er reyndasti kraftlyftingarmaður Íslands og meðal bestu íþróttamanna heims í sínum flokki.
Helstu afrek hans á árinu 2010 eru þessi:
8. sæti á HM 2010 svo og  5. sæti í réttstöðulyftu.
8. sæti á EM 2010.
2. sæti og silfurverðlaun á Norðurlandamóti 2010
Íslandsmeistari 2010.
Auðunn setti fjölda Íslandsmeta á árinu.
Í dag er hann í níunda sæti á Heimslista IPF í kraftlyftingum og í 25. sæti á Heimslista IPF í bekkpressu 2010.

María er ein fremsta kraftlyftingakona Norðurlandanna, auk þess sem hún hefur verið ósigrandi á innanlandsmótum um árabil.
Hennar besti árangur á þessu ári var án efa Norðurlandameistaratitill, bæði í kraftlyftingum og bekkpressu.
Helstu afrek á árinu:
HM 2010 Suður-Afríku, 10.sæti, samanlagður árangur 440,0 kg
EM 2010 Svíðþjóð, 9.sæti, samanlagður árangur 427,5 kg
NM 2010 Noregur:
1.sæti – Norðurlandameistari í kraftlyftingum,
Samanlagður árangur 440,0 kg
Íslandsmet í bekkpressu 102,5 kg
Íslandsmet í réttstöðu 172,5 kg
1.sæti – Norðurlandameistari í bekkpressu
Árangur 107,5 kg – Íslandsmet
María er í 18.sæti á Heimslistanum, en í 13. á lista yfir sterkustu konum Evrópu. Á Norðurlöndunum er María með 6.besta árangurinn á árinu af 53 konum sem hafa keppt í hennar þyngdarflokk (67,5 kg).

Við erum ákaflega stolt af þessu afreksfólki okkar og óskum þeim til hamingju með kjörið og árangurinn á árinu.

Nýtt Íslandsmet

Freyr Aðalsteinsson, akureyringur búsettur í Noregi, setti nýtt íslandsmet í réttstöðulyftu á jólamóti í Stavanger í dag.
Hann lyfti 262,5 kg í -90,0 kg flokki og bætti þar með eigið met um 2,5 kg. Þetta er jafnframt met í öldungaflokki I og II.
Við óskum honum til hamingju með árangurinn.

Nýir þyngdarflokkar

IPF samþykkti á þingi í desember að breyta skiptingu í þyngdarflokka. Frá og með 1.janúar 2011 verður keppt í eftirtöldum flokkum:
Konur:  -43kg (unglingaflokkur) -47kg, -52,kg, -57kg, -63kg, -72kg, -84kg og +84kg.
Karlar: -53kg (unglingaflokkur)  -59kg, -66kg, -74kg, -83kg, -93kg, -105kg, -120kg og +120kg.

Fyrsta mót 2011 – Reykjavík International Games

Skráning stendur yfir á Réttstöðumót Reykjavík International Games sem fram fer í Laugardalshöllinni þann 15.jan 2011. Á leikunum er keppt í fjölmörgum íþróttagreinum, s.s. frjálsum, sundi, fimleikum svo eitthvað sé nefnt, en þetta er í fyrsta sinn sem kraftlyftingar eru með.
Það er Kraftlyftingadeild Ármanns sem er mótshaldari og hefur deildin boðið nokkrum erlendum keppendum að taka þátt. Frá Danmörku kemur ein kona sem vann til bronsverðlauna í réttstöðu á síðasta Evrópumeistaramóti. Einnig koma tveir keppendur í karlaflokki frá Noregi og hefur annar þeirra unnið bæði brons og silfur á HM unglinga. Það er ekki oft sem íslenskir keppendur fá að keppa á móti erlendum íþróttamönnum og því um að gera að nota tækifærið.
Keppnisgjald er 3000 kr.  en skráningu lýkur á miðnætti 1.jan.
Skráningareyðublað:  rig10
Athugið að keppt er skv. nýju þyngdarflokkunum. Nánari upplýsingar á http://www.rig.is/og hjá mótshaldara  isolda@simnet.is Fylgist líka með okkur á facebook http://www.facebook.com/home.php#!/pages/Deadlift-Meet-Reykjavik-International-Games/135774523147133

Jólamót KFA og UFA

Laugardaginn 11. desember sl. fór fram Jólamót KFA og  UFA á Akureyri. Mótið var liður í lyftingarlotu UFA og UMSE – inga sem hafa verið að æfa hjá KFA í vetur. 17 efnilegir unglingar, 10 stúlkur og 7 drengir, kepptu  í páverklíni, bekkpressu og réttstöðulyftu.
Úrslit í kvennaflokki: 
Guðrún Ósk Gestsdóttir, 16 ára stúlka frá Siglufirði vann kvennaflokkinn á stigum, en hún tók 57.5 kg í páverklíni, 50 kg í bekkpressu og 102.5 kg í réttstöðulyftu sem tryggði henni rúmlega 1 stigs forskot á Freydísi Önnu Jónsdóttir sem hafnaði í öðru sæti.

Úrslit í karlaflokki:
Ormar Agnarsson vann öruggan sigur með 115 kg í páverklíni, 107.5 kg í bekkpressu og 225 kg í réttstöðulyftu. Á eftir honum kom Örn Dúi Kristjánsson.

Mótshald var hefðbundið, en KFA varð fyrsta félagið til að nota nýju þyngdarflokkana sem taka gildi á næsta ári. Nánari úrslit: jolamotKFA