Hver er Felix?

Felix er félagakerfi ÍSÍ og UMFÍ  og heldur utan um alla íþróttamenn í landinu, þar með talið kraftlyftingamenn.

Felix er tæki fyrir stjórnir félaga til að halda skrá og yfirlit yfir sína meðlimi. Það gefur stjórn KRAFT tækifæri til að fylgjast með vöxt og þróun hjá félögum og í samskiptum KRAFT við ÍSÍ, t.d. við umsóknir um styrki og úthlutun fjármagns eru það tölurnar í Felix sem eru lagðar til grundvallar. Það er þess vegna afar mikilvægt að þær séu réttar á hverjum tíma.

Frá því að KRAFT var stofnað í apríl sl hefur míkið starf verið unnið í löglegri skráningu félagsmanna. Nú vantar lokahnykkinn til að allir verða komnir inn fyrir áramót. Í framtíðinni verða eingöngu þeir hlutgengir á mótum sem eru opinberir félagsmenn og skráðir í bókum ÍSÍ.
Ef þú ert í vafa um hvort þú sért rétt skráður getur þú haft samband við ritara þins félags og gengið úr skugga um það.

Reglugerð um mótahald

Stjórn Kraftlyftingasambands Íslands hefur ásamt dómaranefnd sambandsins hafið vinnu við samningu reglugerðar um ýmis mál. Einfaldar og skýrar reglur eru forsenda þess að allir sitji við sama borð og þekkja sín réttindi og skyldur sem íþróttamenn og -félög. Flest í reglunum er gamalt og gott og hefur verið í gildi um árabil, en sumt er nýtt og krefst breytinga. Sumt er þegar komið í gagnið, annað verður komið í framkvæmd á næstunni.

Nauðsynlegt er fyrir keppendur og mótshaldara að þekkja reglurnar vel: 
http://kraft.is/wp-content/uploads/2010/10/reglugerd_mot.pdf

Árnað heilla

Fimmtugur er í dag Hörður Magnússon kraftlyftingafrömuður.

Hörður hefur verið atkvæðamíkill í starfi fyrir kraftlyftingaíþróttina í mörg ár bæði sem keppandi, leiðbeinandi og ekki síst sem dómari, en Hörður er einn fárra Íslendinga sem hefur réttindi sem alþjóðadómari í kraftlyftingum.

Á þessum tímamótum vill stjórn Kraftlyftingasambands Íslands þakka honum fyrir hans mikla framlag í þágu íþróttarinnar. Við vonum að við fáum áfram að njóta góðs af reynslu hans, þekkingu og innsæi.

Stjórn KRAFT sendir honum innilegar hamingjuóskir með afmælið og veit að allur kraftlyftingaheimurinn tekur undir.

Ný Íslandsmet

Þó nokkur ný Íslandsmet voru sett á bikarmótinu um helgina í hinum ymsu aldurs- og þyngdarflokkum:

KRAFTLYFTINGAR

OPINN FLOKKUR KVENNA

HNÉBEYGJA
- 56,0 kg: Signý Harðardóttir, Massi, 110 kg

BEKKPRESSA
- 56,0 kg: Signý Harðardóttir, Massi, 60 kg

RÉTTSTAÐA
- 56,0 kg: Signý Harðardóttir, Massi, 115 kg
- 60,0 kg: Borghildur Erlingsdóttir, Ármann, 130 kg

SAMANLAGT
- 56,0 kg: Signý Harðardóttir, Massi, 285 kg
- 60,0 kg: Borghildur Erlingsdóttir, Ármann, 280 kg

OPINN FLOKKUR KARLA

HNÉBEYGJA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 200 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 262,5 kg
-100,0 kg: Alexander Ingi Olsen, Breiðablik, 215 kg.
-125,0 kg: Árni Freyr Stefánsson, Akranesi, 305 kg

BEKKPRESSA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 110 kg
- 82,5 kg: Gísli Þrastarson, Ármann, 152,5 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 237,5 kg

RÉTTSTAÐA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 190 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 252,5 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 290 kg

SAMANLAGT
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 500 kg
- 75,0 kg: Hörður Birkisson, Massi, 540 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 645 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 817,5 kg

UNGLINGAFLOKKUR KARLA – 23 ÁRA OG YNGRI

HNÉBEYGJA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 200 kg
- 82,5 kg: Ari E. Jónsson, Breiðablik, 180 kg

BEKKPRESSA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 110 kg

RÉTTSTAÐA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 190 kg
- 82,5 kg: Ari E. Jónsson, Breiðablik, 235 kg

SAMANLAGT
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 500 kg
- 82,5 kg: Ari E. Jónsson, Breiðablik, 540 kg

DRENGJAFLOKKUR – 18 ÁRA OG YNGRI

HNÉBEYGJA
- 75,0 kg: Davíð Birgisson, Massi, 130 kg
-100,0 kg: Alexander Ingi Olsen, Breiðablik, 215 kg

BEKKPRESSA
- 75,0 kg: Davíð Birgisson, Massi, 87,5 kg
-100,0 kg: Þorvarður Ólafsson, Massi, 150 kg

RÉTTSTAÐA
- 75,0 kg: Davíð Birgisson, Massi, 140 kg
-100,0 kg: Þorvarður Ólafsson, Massi, 220 kg

SAMANLAGT
- 75,0 kg: Davíð Birgisson, Massi, 357,5 kg
-100,0 kg: Þorvarður Ólafsson, Massi, 580 kg

ÖLDUNGAFLOKKAR

KONUR 40 – 49 ÁRA

RÉTTSTAÐA
- 60,0 kg: Borghildur Erlingsdóttir, Ármann, 130 kg

SAMANLAGT
- 60,0 kg: Borghildur Erlingsdóttir, Ármann, 280 kg

KARLAR 40 – 49 ÁRA

HNÉBEYGJA
- 75,0 kg: Hörður Birkisson, Massi, 195 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 262,5 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 290 kg

BEKKPRESSA
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 237,5 kg

RÉTTSTAÐA
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 252,5 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 290 kg

SAMANLAGT
- 75,0 kg: Hörður Birkisson, Massi, 540 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 645 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 817,5 kg

KARLAR 50 – 59 ÁRA

HNÉBEYGJA
- 75,0 kg: Hörður Birkisson, Massi, 195 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 262,5 kg

RÉTTSTAÐA
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 252,5 kg

SAMANLAGT
- 75,0 kg: Hörður Birkisson, Massi, 540 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 645 kg

—————————————————————————————————

 BEKKPRESSA – SINGLE LIFT

OPINN FLOKKUR KVENNA
- 56,0 kg: Signý Harðardóttir, Massi, 60 kg

OPINN FLOKKUR KARLA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 110 kg
- 82,5 kg: Gísli Þrastarson, Ármann, 152,5 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 237,5 kg

UNGLINGAFLOKKUR KARLA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 110 kg

DRENGJAFLOKKUR KARLA
-100,0 kg: Þorvarður Ólafsson, Massi, 150 kg

- ÖLDUNGAFLOKKUR KARLA 40 – 49 ÁRA
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 237,5 kg

———————————————————-

RÉTTSTAÐA – SINGLE LIFT

OPINN FLOKKUR KVENNA
- 60,0 kg: Borghildur Erlingsdóttir, Ármann, 130 kg

OPINN FLOKKUR KARLA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 190 kg
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 252,5 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 290 kg

UNGLINGAFLOKKUR KARLA
- 67,5 kg: Bjarni Þorleifsson, Massi, 190 kg
- 82,5 kg: Ari E. Jónsson, Breiðablik, 235 kg

DRENGJAFLOKKUR KARLA
- 75,0 kg: Davíð Birgisson, Massi, 140 kg

ÖLDUNGAFLOKKUR KARLA 40 – 49 ÁRA
- 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 252,5 kg
-125,0 kg: Fannar Dagbjartsson, Ármann, 290 kg

ÖLDUNGAFLOKKUR KARLA 50 – 50 ÁRA
 82,5 kg: Halldór Eyþórsson, Breiðablik, 252,5 kg


Skráningu lokið

Skráningu er lokið á Íslandsmeistaramótið í réttstöðulyftu sem fram fer á Selfossi laugardaginn 4. desember.

Keppandalisti verður birtur um leið og búið er að fara yfir eyðublöðin og greiðslukvittanir.

Týndir sloppar

Tveir bekkpressubolir hurfu í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ á bikarmótinu í gær. svartur super katana nr 38 og svartur Titan Katana sloppur nr.50. Þetta eru rándýrar græjur og sárt saknað af eigendum sem ætluðu að nota þá til góðra hluta. Endilega gáðu í töskuna og athuga hvort þú hafir fengið eitthvað í misgripum.

Signý og Fannar bikarmeistarar.

Bikarmót Kraftlyftingasambands Íslands 2010 lauk í Mosfellsbæ fyrir stundu.

Langur og strangur dagur endaði þannig að Signý Harðardóttir, UMFN Massi, varð bikarmeistari kvenna.
Fannar Dagbjartsson, Ármanni, varð bikarmeistari karla.
Stigabikar liða hafnaði hjá UMFN Massa í Njarðvíkum.  

Gestur á mótinu var Dean Bowring, margfaldur meistari Breta, sem kom við á leiðinni heim frá HM og lyfti 1015 samanlagt í +125,0 kg flokki.

Við óskum sigurvegurum og öllum sem gerðu góða hluti til hamingju með árangurinn.

Nánara umfjöllun og myndir frá mótinu munu birtast fljótlega.

Heildarúrslit: bikarmot10

Stigaúrslit: bik10_stig


Skráningarfrestur framlengdur

Ákveðið hefur verið að framlengja skráningarfrestinn á ÍM í réttstöðulyftu til miðnættis þriðjudaginn 23.nóvember.

Fyrir þann tíma þurfa félögin að hafa sent inn sína skráningarlista og greitt keppnisgjald á reikning mótshaldara.

ÍM í réttstöðulyftu – síðasti skráningardagur

Skráning stendur yfir á Íslandsmótið í réttstöðulyftu sem fram fer á Selfossi laugardaginn 4.desember í umsjón kraftlyftingadeildar UMF Selfoss. Skráning fer fram á þar til gerðum eyðublöðum og sendist til bryndissund@simnet.is með afrit á kraft@kraft.is

SKRÁNINGAREYÐUBLAÐ: http://kraft.is/wp-content/uploads/2010/10/skraning_dedd10.doc

Skráningargjaldið er 2500 krónur og þarf að berast til að skráning taki gildi.
Reikningsnúmer: 325-26-5699, kt: 560910-0960

Skráningarfrestur rennur út á miðnætti.