Styrkir vegna HM

Kraftlyftingasambandi Íslands hefur borist veglegir styrkir vegna þátttöku landsliðsins á HM í kraftlyftingum sem fram fer í Suður-Afríku í nóvember. Heildsölufyrirtækið Gunnar Eggertsson hf hefur styrkt landsliðið um 200.000 krónur og Íþróttasamband Íslands hefur lagt til flugmiða á leiðinni til og frá London.
Stjórn KRAFT þakkar styrkveitendum kærlega fyrir þetta míkilvæga framlag. 
María Guðsteinsdóttir og Auðunn Jónsson keppa fyrir hönd Íslands á HM. Klaus Jensen er aðstoðarmaður.

Samúðarkveðja

Látin er á Akureyri Sigríður Kristín Sigtryggsdóttir, en hún var eiginkona Guðmundar Svanlaugssonar kraftlyftingamanns. Guðmundur hefur verið ötull hvatamaður að uppbyggingu íþróttarinnar á Akureyri í mörg ár og er dómari hjá Kraft. Hann á marga vini innan sambandins bæði á Akureyri og víðar sem nú hugsa til hans með hlýhug.  Fyrir hönd þeirra allra sendir stjórn Kraftlyftingasambands Íslands honum og fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur.


Keppnisreglur uppfærðar

Dómaranefndin hefur lokið uppfærslu keppnisreglna í kraftlyftingum.
Finna má reglurnar á síðunni UM KRAFT undir SKJÖL.
Nauðsynlegt er að keppendur t.d. á bikarmótinu kynni sér reglurnar vel, sérstaklega reglurnar um framkvæmd gildra lyfta.

Stjórn KRAFT þakkar dómnefndinni fyrir hennar störf.

Skráning hafin

Skráning er hafin á Bikarmót KRAFT 2010 sem fram fer í íþróttamiðstöðinni i Mosfellsbæ sunnudaginn 21.nóvember nk.

Athugið að skráningarfrestur er til miðnættis 7.nóvember, eða 14 daga fyrir mót.

Félögin þurfa að senda inn skráningu á neðangreindu eyðublaði til kraft@kraft.is
Nöfn og kennitölur keppenda og nöfn aðstoðarmanna þurfa að koma fram, en eingöngu skráðir einstaklingar fá aðgang að upphitunnar- og keppnissvæði.
Óþarft ætti að vera að taka fram að keppendur og aðstoðarmenn skulu vera skráðir félagsmenn til að mega taka þátt í mótinu.

Keppnisgjaldið er 4000 krónur og skal greitt inn á reikning KRAFT fyrir miðnætti 7.nóvember til að skráning taki gildi.

EYÐUBLAÐ: http://kraft.is/wp-content/uploads/2010/10/skraning_bik10.doc

Bætt æfingaraðstaða

Kraftlyftingadeild Breiðabliks fagnar í dag þeiri ákvörðun Íþrótta- og tómstundaráðs Kópavogs að úthluta þeim endanlegt og hentugt húsnæði til æfinga f.o.m. 10 nóvember. Fastir æfingartímar verða til að byrja með 14.00 – 19.00 virka daga. Við óskum Blikum til hamingju með langþráðan áfanga.

Ármenningar eru líka búnir að koma sínum æfingum á rétt ról, með fasta æfingartíma og góða aðstöðu í Laugardalnum.

Önnur félög eru í sömu hugleiðingum. Verið er að bæta aðstöðu til kraftlyftingaiðkunnar á mörgum stöðum, og verður sagt nánar frá því síðar.

Þing IPF

Heimsmeistaramótið í kraftlyftingum fer fram í Suður-Afríku um miðjan nóvember nk. Íslands sendir tvo keppendur á mótið. Auðunn Jónsson keppir í +125,0 kg flokki og María Guðsteinsdóttir keppir í -67,5 kg flokki.

Í tengslum við mótið fer fram árlegt alþjóðaþing IPF.
Þeir sem vilja kynna sér stöðuna í kraftlyftingaheiminum og tillögur um lagabreytingar og reglubreytingar sem liggja fyrir þingið,  geta lesið HÉR.

Breytt dagsetning

Stjórn KRAFT ákvað á fundi sínum í gær að færa bikarmót KRAFT til sunnudagsins 21.nóvember.

Mótið verður haldið í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ og skráningarfrestur er til 7.nóvember. Upplýsingar um þetta hefur verið sent til allra félaga, en öll skráning fer fram gegnum kraftlyftingafélögin.

Nánari upplýsingar um mótið koma þegar nær dregur.

Kraftlyftingadeild Ármanns

Ármenningar eru nú á fullu að búa sig undir Bikarmótið og Íslandsmótið í réttstöðu sem framundan eru, en þeir ætla sér stóra hluti þar og munu mæta með öflugt lið sem ætlar að sanka að sér stigum í stigakeppni liða.

Nú er loksins svo komið að deildin hefur gengið frá samningum um örugga og góða æfingaraðstöðu, en hingað til hafa ármenningar þurft að gera sér það að góðu að æfa hér og þar um bæinn. Með öruggu aðgengi að góðri aðstöðu verður allt annar grunnur undir uppbyggingu deildarinnar.

Nú þegar æfingaraðstaðan er komið í höfn er næsta stóra málið réttstöðumótið á Reykjavik International Games í janúar. Kraftlyftingadeild Ármanns er mótshaldari og undirbúningur er hafinn. Til stendur að fá erlenda gestakeppendur bæði í karla- og kvennaflokki, og búast má við skemmtilega keppni og mikla umfjöllun í fjölmiðlum jafnvel beina sjónvarpsútsendingu frá mótinu. 
Það er frábært að fá kraftlyftingar inn sem keppnisgrein á RIG og upplagt fyrir keppendur og áhugamenn að merkja strax við 15.janúar í dagbókinni. http://www.rig.is/sports/powerlifting