Þing NPF (Nordic Powerlifting Federation) fór fram í tengslum við Norðurlandamótið í kraftlyftingum um helgina.
Linda Höiland, Noregi, var kosin nýr forseti sambandsins. Robert Ericsson, Svíþjóð, var settur framkvæmdastjóra til eins árs eða þar til nýr verður kosinn 2011. Fulltrúi Íslands í stjórn sambandsins er Gry Ek, ritari KRAFT.
Monthly Archives: August 2010
HM unglinga
Metþáttaka er á HM unglinga (junior/sub-junior) sem nú stendur yfir í Tékklandi. 360 keppendur eru mættir til leiks. Keppnin stendur til 4.september og hægt er að fylgjast með beinum útsendingum og úrslitum HÉR.
María Norðurlandameistari í bekkpressu
María Guðsteinsdóttir, Ármanni, bætti í dag annan titil i safnið Þegar hún varð Norðurlandameistari kvenna í bekkpressu í -75,0 kg flokki. Hún lyfti 107,5 kg sem er nýtt Íslandsmet.
Stigaverðlaun kvenna hlaut Susse Hougaard, Danmörk, sem lyfti 140 kg i -60,0 kg flokki.
Stefan Jamroz, SviÞjoð, sigraði i karlaflokki með 303 kg i -110 kg flokki.
Landsliðið og aðstoðarmenn – myndir
Auðunn með silfrið
Auðunn Jónsson keppti á Norðurlandamótinu í kraftlyftingum í dag og kemur heim með silfurverðlaun í +125,0 flokki karla.
Í hnébeygju lyfti Auðunn best 380 kg í fallegri lyftu og hann átti mjög góða tilraun við 395, en fékk ógilt 1-2 vegna dýptar.
Í bekkpressu endaði hann á byrjunarþyngdinni 255,0 kg. Hann reyndi við Íslandsmet í síðustu lyftunni með 272,5 kg en mistókst naumlega. Lyftan var létt, en tæknilega ekki nógu góð.
Í réttstöðu endaði hann í 320,0 kg og átti tvær tilraunir við 340,0 kg þar sem hann náði að rétta úr en missti gripið. Samtals gerði þetta 955 kg og silfur í flokknum. Sigurvegari var Kenneth Sandvik, Finnlandi, með 1030 kg.
Auðunn er í undirbúningi fyrir HM í nóvember og var ekki búinn að undirbúa þetta mót sérstaklega. Það verður því að segja að styrkurinn á þessu móti lofar mjög góðu.
Lára Bogey hreppti silfrið
Lára Bogey Finnbogadóttir, Kraftlyftingafélag Akraness, keppti í dag á Norðurlandamótinu í Noregi. Hún gerði sér lítið fyrir og vann silfurverðlaun í flokki +90,0 kg kvenna. Hún lyfti seríuna 115,0 – 80,0 – 140,0 = 335,0 kg, en það er 45 kg bæting á einu bretti og allt Íslandsmet í þessum þyngdarflokki.
Lára stóð sig mjög vel á sínu fyrsta stórmóti og var félagi sínu og landi til sóma. Hún á miklar bætingar inni ef hún heldur áfram að æfa af krafti.
María Norðurlandmeistari
María Guðsteinsdóttir, Ármanni, varð í dag Norðurlandameistari kvenna í kraftlyftingum í -67,5 kg flokki.
Hún lyfti seríuna 165,0 – 102,5 – 172,5 = 440,0 kg.
María háði spennandi baráttu um gullið við Lindu Samuelsson frá Svíþjóð, en María lagði grunninn að sigurinn í bekkpressunni með sterkri lyftu og nýju Íslandsmeti. Hún tók síðan af allan vafa með glæsilegu Íslandsmeti í síðustu réttstöðulyftunni.
Þetta er í annað skipti sem María hreppir þennan titil, en hún vann líka til gullverðlauna árið 2005.
María keppir aftur á morgun í bekkpressu.
Fylgist með Norðurlandamótinu
Norðurlandamótið í kraftlyftingum og bekkpressu, opnum flokki, stendur nú yfir í Bergen, Noregi.
Úrslitin birtast jafnóðum á netinu HÉR.
Ferðastyrkur
ÍSÍ hefur endurnýjað samning við Flugfélag Íslands vegna keppnisferða íþróttamanna.
Kraftlyftingamenn sem eru á leið á viðurkennd mót KRAFT geta notið góðs af því.
Míkilvægt er að öll félög gangi frá skráningu sinna iðkenda í Felix, skráningarkerfi ÍSÍ, strax svo þeir geta nýtt sér þetta tilboð.
Hér má lesa nánar
Mótaskrá 2011
Frestur til að skrá mót á mótaskrá Kraftlyftingasambandsins keppnisárið 2011 rennur út 1. september.
Eingöngu mót sem eru á mótaskrá eru tekin til greina við úthlutun á ferðastyrkjum og við skráningu Íslandsmeta.
Hér má sjá drög að mótaskrá eins og hún er nú.

