Fannar Dagbjartsson hafði því miður ekki erindi sem erfiði á EM öldunga sem lauk í Tékklandi í dag. Hann féll úr í hnébeygju og fékk heldur ekki gilda lyftu á bekknum. Reyndar var míkið mannfall í flokki hans, -110,0 kg M1, fjórir keppendur féllu úr keppni. Sigurvegari var svíinn Håkan Persson með 815,0 kg. HEILDARÚRSLIT Menn...
Í tilefni af 60-ára afmæli formanns KRAFT tóku kraftlyftingafélögin í landinu og nokkrir vinir Sigurjóns úr hópi áhugamanna um íþróttina sig saman og gáfu KRAFT veglega gjöf honum til heiðurs. Um er að ræða mótstjórnarforritið Goodlift. Þessi gjöf mun væntanleg nýtast öllum keppendum, öllum félögum og öllum áhorfendum í framtíðinni og gera mótin auðveldara í...
Evrópumót öldunga í kraftlyftingum er hafið í Tékklandi. Fannar Dagbjartsson keppir fyrir hönd Íslands í flokki -110,0 kg M1 laugardaginn 26. júní. Við óskum honum alls hins besta, en hægt er að fylgjast með Fannari og öðrum keppendum í beinni útsendingu á netinu HÉR. Úrslit og aðrar upplýsingar má finna á heimasíðu EPF.
Sigurjón Pétursson, formaður KRAFT, er sextugur í dag. Stjórn KRAFT, fyrir hönd kraftlyftingaáhugamanna allra, sendir honum heillaóskir á þessum tímamótum. Kveðjunni fylgja þakkir fyrir fórnfúst starf í þágu KRAFT, kraftlyftinga- og íþróttaáhugamönnum öllum í landinu til heilla. Kveðjunni fylgir líka ábending um að reglubundin styrktarþjálfun er undirstaða heilbrigðis á efri árum
EM öldunga hefst í Tékklandi 22. júni. Fannar Gauti Dagbjartsson keppir fyrir hönd Íslands í -110,0 kg flokki karla 40 – 49 ára laugardaginn 26. júni. Fannar hefur undirbúið sig vel undir mótið og ætti að geta barist um verðlaun í þessum fjölmenna flokki á góðum degi. Vonandi situr Kópavogsmótið ekki lengur í honum. Við munum fylgjast náið...
EM unglinga lauk um helgina og var árangurinn gríðarlega góður í mörgum, ef ekki öllum flokkum. Mörg met voru sett á mótinu. HÉR má sjá heildarúrslit.
Byrjað er að vinna mótaskrá fyrir næsta keppnistímabil og má sjá drög að henni undir MÓT. Stjórnin hvetur félögum eindregið til að huga að mótahald sem fyrst og taka frá dögum strax, þó að frestur til að fá mót skráð renni ekki út fyrr en 1. september. Það er allt sem mælir með því að halda...
Evrópurmót unglinga stendur nú yfir í Noregi. Bein útsending er frá mótinu hér: http://live.styrkeloft.no/ejpc2010/
Copyright © 2010 - KRAFTLYFTINGASAMBAND ÍSLANDS - Webmaster@kraft.is